Jason Dufner kemur sér í form

Jason Dufner fagnar sigri sínum á PGA-meistaramótinu árið 2011. Hans …
Jason Dufner fagnar sigri sínum á PGA-meistaramótinu árið 2011. Hans eini sigur á risamóti. AFP

Bandaríski kylfingurinn Jason Dufner virðist ætla sér stóra hluti á árinu 2015 og mætir til leiks í ár í mun betra líkamlegu ástandi en áður. 

Dufner er snjall kylfingur og hefur unnið eitt risamót en hefur hingað til verið þybbinn og fremur þunglamalegur. Ekki mjög íþróttamannslegur á velli. 

Nú virðist þetta vera að breytast. Dufner tístar nú reglulega um heilbrigt líferni og gott matarræði. Segist ennfremur hafa tekið af sér um tíu kíló á undirbúningstímabilinu. 

Hér má sjá mynd nýlega af kappanum af Twitter-síðu hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert