Fyrsta opna golfmót ársins 2015 fer fram um helgina á Kirkjubólsvelli í Sandgerði eftir því sem fram kemur á heimasíðu Golfsambandsins.
Í tilkynningunni segir ennfremur að í gær hafi 80 manns skráð sig en spáð er fremur hlýju veðri miðað við árstíma.