Ólafur yfirgefur Nesklúbbinn

Ólafur Loftsson við undirskriftina í dag.
Ólafur Loftsson við undirskriftina í dag. Mynd/Facebook-síða Ólafs.

Kylfingurinn Ólafur Loftsson sem leikið hefur undir merkjum Nesklúbbsins allan sinn feril hefur ákveðið að söðla um og spila fyrir hönd Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, GKG á komandi sumri. Þetta kom fram á Facebook-síðu Ólafs í dag.

Um mikla blóðtöku er að ræða fyrir Nesklúbbinn fyrir sveitakeppni GSÍ í sumar en Ólafur hefur verið einn sterkasti kylfingur landsins síðustu ár og varð meðal annars Íslandsmeistari í höggleik árið 2009.

Fréttatilkynning Ólafs:

„Ég hef spilað allan minn feril fyrir hönd Nesklúbbsins og á óteljandi góðar minningar af Nesvellinum. Ég vil taka það skýrt fram að ég tek þessa erfiðu ákvörðun í góðri vinsemd við klúbbinn og ég mun halda áfram að vera í góðu sambandi við hann. Ég ber sterkar tilfinningar til Nesklúbbsins og vil ég koma á framfæri sérstökum þökkum til klúbbsins og allra þeirra fjölmörgu félagsmanna sem hafa ávallt stutt afar vel við bakið á mér og hjálpað mér að ná mínum markmiðum.

Mér finnst þetta vera rétti tíminn til að prófa eitthvað nýtt, breyta um umhverfi og takast á við nýjar áskoranir. Það er mjög heillandi að taka þátt í því öfluga starfi sem fer fram í GKG. Afreksstefna þeirra er mjög metnaðarfull sem á mikla samleið með mínum háleitu markmiðum og er ég sannfærður um að ég eigi eftir að njóta góðs af þeirra starfi. Þar að auki tel ég að ég geti látið gott af mér leiða fyrir klúbbinn og miðlað til þeirra af minni reynslu.

Ég stefni að því að halda til Danmerkur í lok apríl þegar keppni hefst á ný á Nordic League mótaröðinni. Mér hefur gengið vel síðustu daga að vinna með þjálfurum mínum hér heima og er ég nú þegar orðinn æstur að komast út í mót og sýna hvað í mér býr. Spennandi tímar fram undan!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert