Andri fagnaði sínum öðrum sigri á Egils Gull mótinu

Verðlaunahafar á Egils Gull mótinu í dag.
Verðlaunahafar á Egils Gull mótinu í dag. Ljósmynd/GSÍ

Andri Þór Björnsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði á Egils Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í dag á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja.

Andri sigraði með tveggja högga mun en Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð annar og Aron Snær Júlíusson úr GKG varð þriðji. 

Andri lék samtals á -1 á 54 holum en hann fékk fimm fugla á lokahringnum sem hann lék á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallar. Andri lék hringina þrjá á 75-71-69. Þetta er annar sigur hans á Eimskipsmótaröðinni en það eru nokkuð mörg ár síðan Andri fagnaði sínum fyrsta titli á Eimskipsmótaröðinni á Leirdalsvelli. 

„Völlurinn var eins góður og hægt er miðað við árstíma og aðstæður. Ég lék vel og var aldrei í vandræðum og þetta er góður undirbúningur fyrir komandi verkefni. Það verður rok og svipaðar aðstæður á þeim mótum sem ég mun taka þátt í á næstunni,“ sagði Andri en hann er í landsliði Íslands sem tekur þátt á Smáþjóðaleikunum.

Andri stundar nám í Bandaríkjunum og er nýkominn til landsins og hann segir að það hafi ekki verið stórmál að skipta yfir í íslenskar aðstæður eftir Bandaríkjadvölina. „Þetta er það sem maður þarf að æfa sig í að gera. Það er mót í Vestmannaeyjum um næstu helgi, síðan taka við Smáþjóðaleikarnir og British Amateur í kjölfarið. Það er nóg að gera og ég ætla að fagna sigrinum með því að hjálpa pabba að mála í kvöld,“ bætti Andri við. 

Andri Þór Björnsson, GR 215 högg (75-71-69).

Kristján Þór Einarsson, GM 218 högg (74-73-71)

Aron Snær Júlíusson, GKG 222 högg (74-70-78)

Andri Þór Björnsson mundar kylfuna í dag.
Andri Þór Björnsson mundar kylfuna í dag. Ljósmynd/GSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert