KPMG-bikarinn á morgun - fuglar til styrktar Reykjadal

Landsliðið.
Landsliðið. Mynd/GSÍ

Helstu afrekskylfingar landsins munu etja kappi í KPMG-bikarnum laugardaginn 27. júní á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Þar mæta þrjú landslið sameinuð til leiks í keppni gegn helstu atvinnukylfingum Íslands sem verða í fremstu röð í úrvalsliði atvinnu – og áhugakylfinga.

Landsliðin sem mæta til leiks munu nýta þessa keppni til þess að leggja lokahöndina á undirbúninginn fyrir Evrópumót landsliða í karla–, kvenna– og piltaflokki sem fram fara í byrjun júlí.  

Keppnisfyrirkomulagið í KPMG-bikarnum er sótt í hefðir Ryderkeppninnar og leikinn er holukeppni. Sex fjórmenningsleikir fara fram þar sem tveir eru saman í liði og leika einum bolta til skiptis. Fimm tvímenningsleikir fara fram þar sem tveir kylfingar eigast við.  

Í gær var greint frá því hvaða kylfingar mætast í KPMG-bikarnum og eru margir áhugaverðir leikir á dagskrá.

Landsliðið mætir Pressuliði

Leikur 1.  Rástími 11:00. Fjórmenningur.
Landslið Hlynur Bergsson GKG - Tumi Hrafn Kúld GA.
Pressulið: Hákon Örn Magnússon GR - Sigurþór Jónsson.

Leikur 2. Rástími 11:10. Fjórmenningur.
Landslið: Björn Óskar Guðjónsson GM -  Henning Darri Þórðarson GK.
Pressulið: Emil Þór Ragnarsson GKG - Birgir Björn Magnússon GK.

Leikur 3. Rástími 11:20. Tvímenningur.
Landslið: Gísli Sveinbergsson GK.
Pressulið: Egill Ragnar Gunnarssons GKG.

Leikur 4. Rástími 11:30. Fjórmenningur.
Landslið: Ragnhildur Kristinsdóttir GR - Anna Sólveig Snorradóttir GK.
Pressulið: Berglind Björnsdóttir GR -  Saga Traustadóttir GR.

Leikur 5. Rástími 11:40. Fjórmenningur.
Landslið: Karen Guðnadóttir GS - Heiða Guðnadóttir GM.
Pressulið: Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG - Helga Kristín Einarsdóttir NK.

Leikur 6. Rástími 11:50. Fjórmenningur.
Landslið: Haraldur Franklín Magnús GR - Andri Þór Björnsson GR.
Pressulið: Stefán Már Stefánsson GR - Hlynur Geir Hjartarson GOS.

Leikur 7. Rástími 12:00. Fjórmenningur.
Landslið: Axel Bóasson GK -  Rúnar Arnórsson GK.
Pressulið: Aron Snær Júlíusson GKG -  Ólafur Björn Loftsson GKG.

Leikur 8. Rástími 12:10. Tvímenningur.
Landslið: Sunna Víðisdóttir GR.
Pressulið: Signý Arnórsdóttir GK.

Leikur 9. Rástími 12:20. Tvímenningur.
Landslið: Kristján Þór Einarsson GM.
Pressulið: Þórður Rafn Gissurarson GR.

Leikur 10. Rástími 12:30. Tvímenningur.
Landslið: Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK.
Pressulið: Valdís Þóra Jónsdóttir GL.

Leikur 11. Rástími 12:40. Tvímenningur.
Landslið: Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR.
Pressulið: Birgir Leifur Hafþórsson GKG.

Safnað fyrir sumarbúðirnar í Reykjadal

Það er von þeirra sem að keppninni standa að kylfingarnir fái sem flesta fugla í KPMG-bikarnum. Fyrir hvern fugl í KPMG-bikarnum mun ákveðinn upphæð renna til styrktar sumarbúðum í Reykjadal. Síðast þegar slíkt var gert í KPMG-bikarnum safnaðist rúmlega hálf milljón kr. og vonast skipuleggjendur KPMG-bikarsins til þess að álíka upphæð safnist í „fuglastríðinu í Grafarholti.“

Árlega koma um 300 börn og ungmenni í Reykjadal yfir tímabil sem spannar sumarið og helgardvalir á veturna. Sumarbúðirnar hafa það að leiðarljósi að gefa þeim börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra.

Þaulreyndir aðstoðarmenn

Úlfar verður með þaulreynda aðstoðarmenn með í för í KPMG-bikarnum. Samtals er þjálfara – og liðsstjórateymi Íslands með ellefu Íslandsmeistaratitla í golfi í farteskinu. Ragnar Ólafsson og Björgvin Sigurbergsson verða Úlfari innan handar í þessari keppni.

Páll Ketilsson stýrir Pressuliðinu sem er samsett úrvalslið atvinnu – og áhugakylfinga. Ragnhildur Sigurðardóttir verður honum til aðstoðar. Páll er ritstjóri kylfingur.is en Ragnhildur er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi og PGA kennari.   

KPMG-bikarinn býður upp á spennu og tilþrif þar sem leikinn verður holukeppni og er þetta kjörið tækifæri til þess að sjá bestu kylfinga landsins etja kappi á sögufrægum golfvelli í Grafarholti.  

Margt í boði í Básum og við Grafarkotsvöll

Samhliða KPMG-bikarnum  verður opið í æfingaaðstöðu GR í Básum allan daginn. Þar er öllum boðið að slá golfbolta og fá grunnleiðsögn í íþróttinni – en samtök PGA kennara á Íslandi verða með fulltrúa á svæðinu sem gefa góð ráð.  

Að auki er hægt að taka þátt í skemmtilegri púttkeppni sem fram fer frá kl. 11:00-14:00 við æfingasvæði Grafarkotsvallar við Bása.  Nöfn þeirra sem taka þátt fara í pott og er glæsilegur ferðavinningur í verðlaun. Dregið verður úr pottinum um leið og verðlaunaafhending fer fram í lok dags í KPMG Bikarnum.

Golfsamband Íslands, PGA, KPMG og Golfklúbbur Reykjavíkur óska keppendum og gestum góðrar skemmtunar í Grafarholti á laugardaginn.

Pressuliðið.
Pressuliðið. Mynd/GSÍ
KPMG-bikarinn.
KPMG-bikarinn. Mynd/GSÍ.
Það er ávallt stuð í sumarbúðunum í Reykjadal.
Það er ávallt stuð í sumarbúðunum í Reykjadal. Ernir Eyjólfsson
Margrét Vala Marteinsdóttir, Forstöðukona Reykjadals, mætti til að kynna sumarbúðirnar …
Margrét Vala Marteinsdóttir, Forstöðukona Reykjadals, mætti til að kynna sumarbúðirnar í gær. Mynd/GSÍ.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert