Einvígið á Nesinu á mánudaginn

Signý Arnórsdóttir nýkrýndur Íslandsmeistari verður meðal þátttakenda í Einvíginu á …
Signý Arnórsdóttir nýkrýndur Íslandsmeistari verður meðal þátttakenda í Einvíginu á Nesinu á mánudaginn kemur. mbl.is / Styrmir Kári

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 19. skipti á Nesvellinum mánudaginn 3. ágúst næstkomandi.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu barna og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL). 

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið.  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

DHL Express á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða.  Í ár er það BUGL, barna og unglingadeild Landspítalans, sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL.  BUGL sérhæfir sig í greiningu og meðferð á geðröskunum barna og unglinga með það að leiðarljósi að stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og fjölskyldna þeirra.

Þátttakendur í ár eru Aron Snær Júlíusson, Birgir Leifur Hafþórsson, Björgvin Sigurbergsson, Helga Kristín Einarsdóttir, Hlynur Geir Hjartarson, Ólafur Björn Loftsson, Ragnhildur Sigurðardóttir, Signý Arnórsdóttir, Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson.

          

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert