Fram kom á vefsíðunni kylfingur.is í gær að Aron Snær Júlíusson, Emil Þór Ragnarsson og Ragnar Már Garðarsson, sem allir er í GKG, hafi lokið leik á Amateur Meisterschaft (Opna Austurríska, áhugamanna) í gær, en mótið fer fram í Austurríki.
Kylfingarnir komumst allir í gegnum báða niðurskurðina, en skorið var niður bæði fyrir þriðja og fjórða dag.
Aron Snær varð efstur Íslendinganna, en hann endaði jafn í 15. sæti á fimm höggum yfir pari vallarins. Ragnar Már endaði jafn í 24. sæti á 13 höggum yfir pari vallarins. Emil Þór endaði jafn í 40. sæti á 17 höggum yfir pari vallarins.