Ólafía Þórunn fimmtánda á Hamburg Open

Ólafía Þórunn gerði gott mót í Þýskalandi.
Ólafía Þórunn gerði gott mót í Þýskalandi. Styrmir Kári

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lenti í 15. sæti á Hamburg Open golfmótinu á LETAS- atvinnumótaröðinni sem fram fór í síðustu viku í Þýskalandi. 115 keppendur tóku þátt á mótinu.

Ólafía lék mjög vel og lauk keppni á samtals tveimur höggum yfir pari. Ólafía lék fyrsta hringinn á 74 höggum en hún bætti þann árangur á öðrum degi um eitt högg.

LETAS-mótaröðin er næststerkasta atvinnumótaröð kvenna í golfi á eftir LET-Evrópumótaröðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert