Haraldur á -9 eftir tvo hringi

Haraldur Franklín Magnús í Slóvakíu.
Haraldur Franklín Magnús í Slóvakíu. Ljósmynd/GSÍ

Haraldur Franklín Magnús lék á einu höggi undir pari í dag á öðrum hringnum á EM áhugamanna í golfi sem fram fer í Slóvakíu. Haraldur lék á einu höggi undir pari í dag og er samtals á níu höggum undir pari í 19. sætinu.

Haraldur lék manna best á mótinu í gær, á átta höggum undir pari, en náði skiljanlega ekki að fylgja þeim magnaða árangri eftir í dag.

Fyrr í dag lék Guðmundur Ágúst Kristjánsson á sjö höggum undir pari en hann er í 2. sæti mótsins, sæti á eftir Englendingnum Jamie Bower sem er á -13 eftir tvo hringi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert