Íslandsmeistarinn Þórður Rafn endaði í 22. sæti á Sparkassen Open sem fram fór í Bochum Þýskalandi síðustu daga. Þórður Rafn lék hringinn í dag á 71 höggi og hringina þrjá á mótinu á samtals 208 og því samtals á átta höggum undir pari vallarins.
Þórður lék fyrsta hringinn á 71 höggum, annan hringinn á 66 höggum og svo aftur á höggum 71 höggum í dag.
Par vallarins á vellinum sem spilað var á í Bochum á mótinu er 72 högg.
Sparkassen Open er hluti af ProGolf mótaröðinni. Næsta mót í Sparkassen Open verður haldið í Augsburg í Þýskalandi þegar Augsburg Classic fer þar fram dagana 17. - 19. águst.