Norður-Írinn David Feherty mun láta af störfum hjá bandarísku CBS-sjónvarpsstöðinni sem golflýsandi og sérfræðingur en Feherty er mjög þekktur fyrir líflegar lýsingar í sjónvarpi.
Sports Business Journal greindi fyrst frá þessum tíðindum sem komu á óvart þar sem Feherty nýtur mikilla vinsælda. Samkvæmt fréttinni voru Feherty og yfirmenn hans ósammála um hvert hlutverk hans ætti að vera á stöðinni í náinni framtíð.
Feherty reyndi fyrir sér sem atvinnukylfingur en kom fram á sjónarsviðið sem sjónvarpsmaður fyrir um tveimur áratugum síðan. Skapaði hann sér strax sérstakan stíl og er kunnur fyrir skemmtilegar og oft á tíðum fyndnar athugasemdir.
Feherty heldur einnig úti sínum eigin þætti á Golf Channel-stöðinni sem er í eigu NBC. Ekki þykir ólíklegt að NBC reyni að nýta krafta Fehertys frekar þar sem NBC á sýningarréttinn í Bandaríkjunum frá Ólympíuleikunum. Í Ríó á næsta ári verður keppti í golfi og þá mun NBC öðlast sýningarrétt á Opna breska árið 2017.