Ólafía Þórunn er efst á lokamótinu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mbl.is/Styrmir Kári

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni eru í góðri stöðu eftir fyrsta keppnisdaginn á lokamóti tímabilsins á LETAS atvinnumótaröðinni í golfi. Ólafía lék á 68 höggum eða -4 og er hún í efsta sæti. Valdís Þóra lék á pari vallar eða 72 höggum og er hún 10.-14. sæti.

Mótið fer fram á Englandi og er að miklu að keppa fyrir íslensku atvinnukylfingana. Tuttugu efstu á stigalista mótaraðarinnar fara beint inn á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina í Marokkó í lok ársins.

Ólafía er í 16. sæti stigalistans en hún komst i gegnum niðurskurðinn á síðasta móti sem fram fór í Portúgal í síðustu viku. Valdís Þóra er í 25. sæti en hún missti af mikilvægum stigum á síðasta móti þegar hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn. 

Þetta er fyrsta tímabilið hjá Ólafíu á LETAS-atvinnumótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu, á eftir sjálfri LET Evrópumótaröð kvenna. Ólafía hefur tvívegis fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi, 2011 og 2014. Valdís Þóra hefur líkt og Ólafía sigrað tvívegis á Íslandsmótinu í golfi, 2009 og 2012. Hún er á öðru tímabili sínu á LETAS-mótaröðinni en fyrir ári endaði hún í 38. sæti á stigalistanum. 

Alls eru tvö stig á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í lok ársins. Ein íslensk kona hefur náð að tryggja sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni en það gerði Ólöf María Jónsdóttir úr Keili árið 2004. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert