Fowler þremur höggum á eftir

Rickie Fowler
Rickie Fowler AFP

Bandaríski kylfingurinn Rickie Fowler er þremur höggum á eftir efsta manni á Phoenix Open-mótinu á PGA-mótaröðinni í golfi. Lokahringurinn fer fram í kvöld. 

Fowler var efstur ásamt Danny Lee þegar mótið var hálfnað en í gærkvöldi lauk Lee leik á 67 höggum en Fowler á 70. Á milli þeirra skaust Japaninn Hideki Matsuyama sem er jafn Fowler á 10 höggum undir pari. Verður hann í síðasta ráshópnum ásamt Lee sem er á 13 undir pari. 

Athygli vekur að Phil Mickelson er á meðal efstu manna en hann átti dræmt ár í fyrra. Mickelson á marga aðdáendur í Arizonaríki þar sem mótið fer fram en þar keppti hann fyrir háskólaliðið á sínum tíma. Mickelson er á 8 undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert