Brynjar ráðinn framkvæmdastjóri GSÍ

Brynjar Eldon Geirsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands.
Brynjar Eldon Geirsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands. Ljósmynd/GSÍ

Brynjar Eldon Geirsson hefur verið  ráðinn framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands, GSÍ. Hann var valinn úr hópi nærri 50 umsækjenda. Brynjar tekur til starfa í byrjun næsta mánaðar. 

Brynjar er 38 ára gamall og hefur starfað innan golfhreyfingarinnar frá árinu 2000, bæði á Íslandi og í Þýskalandi. Hann tók við starfi íþróttastjóra hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar eftir að hafa lokið PGA golfkennaranámi í Þýskalandi.

Árið 2007 var hann ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og hann var um tíma aðstoðarlandsliðsþjálfari hjá GSÍ. Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem íþróttastjóri Märkischer Golfclub Potsdam í Berlín.

„Ég hlakka mikið til að takast á við þau fjölmörgu krefjandi verkefni sem fylgja starfinu og er þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri. Ég mun vinna að markmiðum Golfsambands Íslands með hag og framfarir hreyfingarinnar að leiðarljósi í nánu samstarfi við golfklúbba landsins," segir Brynjar Eldon Geirsson í tilkynningu frá Golfsambandinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert