Singh ekki með í Ríó

Kylfingurinn Vijay Singh ætlar ekki að vera með á Ólympíuleikunum …
Kylfingurinn Vijay Singh ætlar ekki að vera með á Ólympíuleikunum í Ríó í sumar. AFP

Vijay Singh, kylfingur frá Fídjieyjum, hefur ákveðið að vera ekki meðal þátttakenda á Ólympíuleikunum sem fram fara í Ríó í Brasilíu í sumar.

Singh telur tímasetningu leikanna henta illa, en hann er ennþá að keppa á PGA mótaröðinni á þeim tíma sem Ólympíuleikarnir verða haldnir.

„Ég ætla að einbeita mér að PGA mótaröðinni og hafa hugann algerlega á þeirri mótaröð. Ég hefði viljað taka þátt en það hafði einnig áhrif á þessa ákvörðun að illa hefur gengið að ráða við Zika veiruna,“ sagði Singh þegar hann tilkynnti um ákvörðun sína..

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert