Ólafía byrjar með þeim bestu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, hefur í dag leik á sínu fyrsta móti í sterkustu mótaröð Evrópu, LET Evrópumótaröðinni, á Royal Dar Es Salam vellinum í Rabat, höfuðborg Marokkó.

Ólafía hefur keppni klukkan 12.25 og er með tveimur Spánverjum í ráshópi. Leiknir eru fjórir hringir og niðurskurður er eftir tvo þá fyrri að lokinni keppni á morgun.

Á meðan Ólafía hefur beðið eftir fyrsta tækifærinu á Evrópumótaröðinni hefur hún keppt tvisvar á LET Access, næststerkustu mótaröðinni í Evrópu, og þar er hún í þrettánda sæti stigalistans eftir að hafa endað í 24.-30. sæti í Sviss og í 16. sæti í Frakklandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert