Valdís og Ólafía í eldlínunni

Ólafía Þórunn og Valdís Þóra.
Ólafía Þórunn og Valdís Þóra. Ljósmynd/GSÍ

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR hófu leik í dag á atvinnumóti í Halmstad í Svíþjóð. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni og í samvinnu við Nordea Tour atvinnumótaröðina.

Valdís Þóra náði sínum besta  árangri á síðasta móti sem fram fór á Spáni þar sem hún endaði í þriðja sæti. Alls eru leiknir þrír hringir á mótinu.

Hægt er að fylgjst með mótinu HÉRNA

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert