15 ára í forystu eftir fyrsta hring

Andri Þór Björnsson fór einnig fyrsta hring á 66 höggum.
Andri Þór Björnsson fór einnig fyrsta hring á 66 höggum. Eggert Jóhannesson

Daníel Ísak Steinarsson, kylfingur úr Golfklúbbi Keilis, deilir efsta sætinu eftir fyrsta hringinn á fyrsta mótinu í Eimskipsmótaröðinni í sumar. Þetta kemur fram á Kylfingur.is.

Daníel lék afar vel í dag en hann fór fyrsta hringinn á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari en næstur á eftir honum kom Andri Þór Björnsson sem var einnig á fjórum höggum undir pari.

Kristján Þór Einarsson, fyrrum Íslandsmeistari í golfi, er í þriðja sæti á þremur höggum undir pari eða 67 höggum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Daníel tekur þátt í Eimskipsmótaröðinni en annar hringur hefst á morgun og mun hann að öllum líkindum spila með Andra og Kristjáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert