Ólafía og Valdís komust ekki áfram

Ólafía Þórunn og Valdís Þóra.
Ólafía Þórunn og Valdís Þóra. Ljósmynd/GSÍ

Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir náðu ekki að vinna sér keppnisrétt á opna bandaríska meistaramótinu í golfi.

Þær tóku í dag þátt í úrtökumóti fyrir bandaríska meistaramótið á Buckinghamshire-vellinum á Englandi. Leiknar voru 36 holur en fimm efstu kylfingarnir komust á opna bandaríska sem verður haldið seinna í sumar.

Ólafía Þórunn lék hringina tvo á 7 höggum yfir parinu og Valdís Þóra var á 9 höggum yfir pari vallarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert