Birgir Leifur féll úr leik

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. mbl.is/Styrmir Kári

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Made in Denmark mótinu í Álaborg á Jótlandi. Öðru hring lauk í gær en Birgir Leifur lék á þremur höggum yfir pari hringina tvo. Fyrri hringinn lék hann á 71 höggi en annan hring á 74 höggum, samanlagt á 145 höggum.

Aðeins munaði tveimur höggum að Birgir Leifur kæmist gegnum niðurskurðinn. Mótið í Danmörku er annað mótið sem Birgir Leifur tekur þátt í á Áskorendamótaröðinni á þessu ári. Hann lék á móti í Frakklandi fyrir tveimur vikum þar sem hann hafnaði í 29. sæti.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert