Bjarki og Guðmundur jafnir fyrir lokahringinn

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er efstur ásamt Bjarka Péturssyni.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er efstur ásamt Bjarka Péturssyni. Styrmir Kári

Kylfingarnir Bjarki Pétursson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru jafnir fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu sem fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri. Þeir eru báðir á sjö höggum undir pari.

Bjarki lék á sex höggum undir pari í dag og setti vallarmet en hann og Guðmundur deila efsta sætinu.

Aron Snær Júlíusson úr GKG og Axel Bóasson úr Keili koma næstir á eftir leiðtogunum, aðeins höggi á eftir. Andri Már Óskarsson frá Hellu kemur næstur á fimm höggum undir pari.

Haraldur Franklín Magnús úr GR er á þremur höggum undir pari og þá er Birgir Leifur Hafþórsson í sjöunda sætinu en bakmeiðsli hafa verið að hrjá hann samkvæmt heimildum Kylfings.is

Bjarki Pétursson
Bjarki Pétursson mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert