Rory McIlroy byrjar illa á PGA-meistaramótinu, síðasta risamóti ársins í golfinu, sem hófst í Bandaríkjunum í dag.
Mótið fer að þessu sinni fram í New Jersey og er McIlroy þrjú högg yfir pari eftir átta holur.
Efstur sem stendur er Jimmy Walker á fimm undir pari eftir ellefu holur. Á meðal þeirra sem hafa byrjað mótið af krafti má nefna Rickie Fowler sem er þrjú högg undir pari eftir ellefu holur.