Keppni frestað vegna veðurs

Jason Day á PGA mótaröðinni.
Jason Day á PGA mótaröðinni. AFP

Keppni á þriðja keppnisdeginum á PGA-mótaröðinni, sem nú fer fram í Baltusrol, hefur verið frestað vegna veðurfars en búist var við eldingum seinnipart dags. Keppni var frestað korter yfir tvö að staðartíma. 

Jimmy Walker og Robert Streb eru efstir og áttu að hefja leik um þrjúleytið en verða nú að bíða átekta. Þeir eru jafnir að stigum, báðir níu höggum undir pari. 

Á eftir þeim koma Emiliano Grillo og Jason Day, sem eru jafnir á sjö höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert