Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari úr GKG, er skráður til leiks á næsta móti á Áskorendamótaröð Evrópu í golfi eftir að hafa komið heim og spilað á Eimskipsmótaröðinni um síðustu helgi.
Mótið fer fram í Oxfordskíri í Englandi og heitir Bridgestone Challenge. Birgir kemst að vegna góðs árangurs á þeim mótum sem hann hefur komist á í mótaröðinni í sumar en þau eru fimm talsins. Er Birgir í 113. sæti á stigalista mótaraðarinnar sem stendur og þarf á fleiri mótum að halda til að styrkja stöðu sína.