Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lauk leik á Opna spænska mótinu í Evrópumótaröðinni á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari.
Enn eiga nokkrir kylfingar eftir að ljúka leik en Ólafía Þórunn virðist enda í 44. sæti, fór upp um tvö sæti á síðasta hring. Hún var um tíma á tveimur höggum undir pari í dag en þrír skollar á seinni níu holunum breyttu því.