Fín byrjun hjá Ólafíu á Flórída

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Ljósmynd/GSÍ

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari úr GR, hóf í dag leik á 2. stigi úrtökumótanna fyrir bandarísku LPGA-mótaröðina í golfi.

Ólafía lék á 72 höggum eða á pari Plantation vallarins. Fín byrjun hjá Ólafíu sem er í kringum 40. sætið sem stendur.

179 kylfingar eru með í mótinu og komast um 80 áfram á lokastigið að loknum 72 holum á Flórída. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert