Ólafía í Abu Dhabi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi úr GR, mun í dag hefja leik Fatima Bint Mubarak Ladies Open. Mótið er haldið í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en er hluti af Evrópumótaröðinni.

Ólafía lék í Kína á dögunum en komst ekki í gegnum niðurskurð keppenda. Þangað kom hún frá Bandaríkjunum og hélt síðan áfram til Abu Dhabi. Ólafía mun í næstu viku keppa á móti á Indlandi áður en hún kemur heim til Íslands í stutt stopp. Verðlaunafé er mikið á mótinu í Abu Dhabi og því til mikils að vinna ef Ólafía kemst í gegnum niðurskurðinn. Það myndi auka möguleika hennar á að endurnýja keppnisrétt sinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert