Þórður á þremur yfir pari í dag

Þórður Rafn Gissurarson.
Þórður Rafn Gissurarson.

Þórður Rafn Gissurarson, kylfingur úr GR, lék annan hringinn á egypska Rauðahafsmótinu í Ain Sokhna í dag á 75 höggum, eða þremur höggum yfir pari vallarins.

Mótið er hluti af þýsku mótaröðinni Pro Golf Tour en Þórður var í góðri stöðu eftir fyrsta hringinn í gær þar sem hann lék á 69 höggum, þremur undir pari.

Hann er núna í 31.-36. sæti þegar nokkrir eiga eftir að ljúka keppni í dag en fyrstu 40 halda áfram keppni og Þórður verður örugglega í þeim hópi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert