Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, hóf í morgun þriðja hringinn á Estrella Damm Mediterranean Ladies Open mótinu á Evrópumótaröðinni í Sitges á Spáni.
Valdís hefur lokið fjórtán holum af 18 og hefur leikið á tveimur höggum yfir pari í dag en hún var á tveimur höggum undir pari eftir tvo hringi og var þá í 22. til 29. sæti af 71 keppanda sem komst í gegnum niðurskurðinn.
Núna er hún í 41.-45. sæti og samanlagt á pari vallarins.