Kylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir fékk í gær mikla viðurkenningu þegar henni var boðið að taka þátt á NCAA-Regionals mótinu í golfi sem fram fer þann 8.-10. maí.
Kylfingur.is greindi frá. Aðeins sex kylfingar fengu boð um að taka þátt og var Guðrún ein af þeim, en hún hefur staðið sig afar vel í háskólagolfinu í Bandaríkjunum með Fresno State.
Regionals-mótin eru undankeppnir fyrir sjálft landsmótið í bandaríska háskólagolfinu. Guðrún Brá mun leika í Nýju-Mexíkó, en alls fara mótin fram á fjórum stöðum. Aðrir keppendur tryggðu sæti sitt á mótinu með skólaliðum sínum, en Guðrún Brá tekur þátt í einstaklingskeppninni.