Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á ShopRite Classic-mótinu í New Jersey í Bandaríkjunum, en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni. Ólafía spilaði samtals á fimm höggum yfir pari.
Ólafía spilaði fyrsta hringinn í gær á tveimur höggum yfir pari og ljóst var að hún þyrfti að sækja á öðrum hringnum í dag. Hún fékk hins vegar sex skolla og þrjá fugla á hringnum í dag, spilaði hann samtals á þremur höggum yfir pari og hafnaði samtals á fimm höggum yfir pari.
Áætlaður niðurskurður var við tvö högg yfir pari, svo Ólafía var þremur höggum frá því að komast áfram á mótinu.
Fylgst var með gangi mála hjá Ólafíu í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Ólafía í New Jersey, 2. hringur | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 21:07 Textalýsing 9. - FUGL: Ólafía endar þetta með stæl þrátt fyrir að ljóst hafi verið að hún komist ekki áfram. Fugl á þessari par 5 braut og hún hafnar samtals á fimm höggum yfir pari. Er á +3 í dag og hafnar samtals í 89.-98. sæti. | |||
Augnablik — sæki gögn... |