Bandaríski kylfingurinn Jordan Spieth lyfti sér upp í þriðja sæti á heimslistanum í golfi eftir sigurinn á Travelers-meistaramótinu í gær.
Spieth fór úr sjötta sætinu upp í það þriðja á listanum með sigrinum sem hann vann á ævintýralegan hátt í bráðabana þegar hann setti boltann beint niður úr sandgryfjunni.
Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson er sem fyrr í efsta sæti heimslistans og á eftir honum í öðru sætinu er Japaninn Hideki Matsuyama.