Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék fyrsta hringinn á Thornberry Creek-mótinu í Wisconsin á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari. Mótið er liður í Bandarísku LPGA-mótaröðinni, sterkustu mótaröð heims.
Ólafía var í 12.-18. sæti er hún lauk leik í dag, en einhverjir kylfingar eiga eftir að klára sinn hring og gæti staða hennar því breyst áður en hún hefur leik á morgun.
Hún fór gríðarlega vel af stað í dag og fékk fjóra fugla og einn skolla á fyrstu sjö brautunum. Spilamennskan hennar á síðari níu brautunum var svo mjög örugg og fékk hún átta pör og einn fugl.
Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.