Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur komst í gegnum niðurskurðinn á LPGA-mótinu Marathon Classic sem fram fer í Sylvania í Ohio í Bandaríkjunum.
Ólafía lauk við að spila annan hringinn á mótinu síðdegis í dag sem hún lék á einu höggi undir pari og er samtals á einu höggi undir parinu eftir tvo hringi.
Hún þurfti að bíða eftir því hvort hún kæmist í gegnum niðurskurðinn og það varð ljóst í kvöld. Niðurskurðurinn miðast við eitt högg undir pari og Ólafía spilar því tvo síðustu hringina á mótinu en þetta er 14. mótið sem hún tekur þátt í í LPGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi. Hún er í 55. sæti ásamt fleiri kylfingum.