Wie efst á átta undir fyrir annan hring

Michelle Wie lék best í gær.
Michelle Wie lék best í gær. AFP

Bandaríkjakonan Michelle Wie er efst fyrir annan hring á Opna breska meistaramótinu í golfi. Wie lék frábært golf í gær, en hún krækti í sex fugla á seinni níu holunum sem skilaði henni í hús á átta höggum undir pari eða 64 höggum. Hún hefur þó aðeins eins höggs forystu, en In-Kyung Kim er önnur og Lyndi Duncan þriðja á sex undir.

Mjög góðar aðstæður voru þegar kylfingar léku fyrir hádegi í gær, en þá luku þær efstu einmitt leik. Eftir það fór að hvessa og varð tvíveigis að fresta leik sökum hættu á þrumuveðri. Átta kylfingar leika á fimm undir sem stendur og eru þremur höggum á eftir Wie. Spennandi verður að fylgjast með mótinu, en fylgst verður með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert