Haraldur Franklín lék best allra

Haraldur Franklín Magnús er efstur eftir fyrsta dag.
Haraldur Franklín Magnús er efstur eftir fyrsta dag. Ljósmynd/GSÍ

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús lék best allra á fyrsta degi í Securitas-mótinu, síðasta móti ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi, en spilað er á Grafarholtsvelli. Haraldur lék á 66 höggum eða fimm höggum undir pari. 

Aron Snær Júlíusson er í öðru sæti, einu höggi á eftir Haraldi og Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í þriðja sæti á tveimur höggum undir pari. 

Alls eru leiknir þrír hringir og verða nýir stigameistarar krýndir að móti loknu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert