Birgir á einu undir í dag

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Ljósmynd/GSÍ

Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék á 71 höggi, einu höggi undir pari, í dag á þriðja hring Opna Kasakst­an-móts­ins í golfi sem er hluti af Áskor­enda­mótaröð Evr­ópu.

Birgir Leifur er í 48.-52. sæti á -4 samtals. Birgir fékk fjóra fugla, þrjá skolla og ellefu pör í dag. Hann lék fyrsta hringinn á pari og á þremur undir í gær.

Verðlauna­féð er með því hæsta sem ger­ist í mótaröðinni og nán­ast all­ir sterk­ustu kylf­ing­ar mót­araðar­inn­ar keppa á þessu móti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert