Sigurður bar sigur úr býtum í Þýskalandi

Sigurður Arnar, Daníel Ísak og Kristófer Karl.
Sigurður Arnar, Daníel Ísak og Kristófer Karl. Ljósmynd/GSÍ

Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG sigraði í flokki 14-15 ára á sterku áhugamannamóti sem fram fór í Þýskalandi. Alls tóku þrír íslenskir kylfingar þátt á German Junior Golf í Berlín sem fram fór 11.-14. okt.

Daníel Ísak Steinarsson úr GK og Kristófer Karl Karlsson úr GM léku í flokki 18 ára og yngri. Sigurður Arnar lék hringina fjóra á 80-78-69-75 eða 14 höggum yfir pari.

Kristófer Karl endaði í 4. sæti í sínum flokki en hann lék á +10 (82-74-73-69). Daníel Ísak lék á +14 samtals og endaði í 7. sæti á (74-74-76-78).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert