Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, lék annan hringinn á Taívan-meistaramótinu í golfi sem er hluti af LPGA mótaröðinni á fimm höggum yfir pari vallarins í morgun. Ólafía Þórunn lék fyrsta hring vallarins á fjórum höggum yfir pari vallarins í gær.
Ólafía Þórunn hefur því leikið hringina tvo á samtals níu höggum yfir pari vallarins og er í 72. sæti á mótinu. Enginn niðurskurður er á mótinu og Ólafía Þórunn fær því tækifæri á að laga stöðu sína í mótinu á seinni tveimur hringjum mótsins.