Haraldur komst ekki áfram

Haraldur Franklín Magnús
Haraldur Franklín Magnús mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús kemst ekki á lokastigið á úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröðina en hann lék síðasta hringinn á 2. stigi úrtökumótsins í dag á einu höggi undir pari.

Haraldur Franklín lék hringina fjóra á samtals sex höggum undir pari og er í 33.-34. sæti þegar þetta er skrifað en 22 efstu kylfingarnir komast áfram.

Haraldur fékk fimm fugla á hringum í dag, tvo tvöfalda skolla á seinni níu holunum og lék 11 holur á pari.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert