Valdís með risastökk á heimslistanum

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, tekur sannkallað risastökk á heimslistanum í golfi eftir að hafa hafnað í þriðja sæti á móti á LET-Evrópumótaröðinni í Kína um helgina.

Valdís Þóra fer upp um heil 104 sæti og er nú í 410. sæti sem er hennar besti árangur frá uppihafi. Á einu ári hefur hún farið upp um tæplega 350 sæti.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 180. sæti og fer niður um eitt sæti á listanum milli vikna. Hún hefur hæst náð 179. sæti og hefur farið upp um rúmlega 420 sæti á árinu.

Eiga möguleika á Ólympíuleikum

Góð staða þeirra á heimslistanum er ekki síður mikilvæg fyrir Ólympíuleikana í Tókýó 2020 eins og golf.is greinir frá:

Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista. Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16-59 á styrkleikalistanum.

Sem dæmi má nefna að á ÓL í Ríó de Janiero í Brasilíu árið 2016 komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn á ÓL. Hún var í sæti nr. 446 þegar heimslistinn var uppfærður hinn 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.

Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir í sætum nr. 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285 sætum frá því að komast inn á ÓL.

Miðað við stöðuna núna þá væru Valdís Þóra og Ólafía Þórunn báðar í góðri stöðu þegar kemur að því að komast inn á ÓL 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert