Birgir lék á 74 í Ástralíu

Púttin fyrir fuglum rötuðu ekki rétta leið nema einu sinni …
Púttin fyrir fuglum rötuðu ekki rétta leið nema einu sinni hjá Birgir í Ástralíu. ljósmynd/GSÍ

Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, lék á 74 höggum á sínu fyrsta móti á Evrópumótaröðinni í golfi í mörg ár en mótið fer fram í Ástralíu. Spænska stórstjarnan Sergio Garcia tók strax forystuna í mótinu. 

Mótið fer fram í Queensland og tilheyrir nýju keppnistímabili á Evrópumótaröðinni en þar hefur Birgir nú takmarkaðan keppnisrétt vegna árangurs síns á Áskorendamótaröðinni á árinu. 

Fuglarnir létu á sér standa hjá Birgi á hringnum í kvöld en hann fór út snemma morguns að áströlskum tíma. Birgir fékk aðeins einn fugl á hringnum en hins vegar þrjá skolla. Paraði hann restina og er í 105. sæti sem stendur af um 150 keppendum. 

Mastersmeistarinn Garcia lék á 67 höggum sem er fimm högg undir pari og er einn í forystu. Annar kylfingur sem sigrað hefur á Masters, Mike Weir frá Kanada, lék á höggi betur en Birgir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert