Stjarnan og Haukar skildu jöfn

Andri Stefan í hörðum slag við varnarmenn Stjörnunnar.
Andri Stefan í hörðum slag við varnarmenn Stjörnunnar. mbl.is/Eggert

Stjarnan og Haukar gerðu í kvöld jafntefli, 28:28, í úrvalsdeild karla í handknattleik, N1-deildinni, en leikur liðanna fór fram í Mýrinni í Garðabæ.

Haukar hafa þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og Stjarnan er í fimmta sætinu. Staðan í hálfleik var 15:15.

Björgvin Hólmgeirsson skoraði 9 mörk fyrir Stjörnuna og þeir Volodymir Kysil og Heimir Örn Árnason 6 mörk hvor. Gísli Jón Þórisson og Freyr Brynjarsson gerðu 6 mörk hvor fyrir Hauka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert