Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi landsliði Íslands í handknattleik heillaóskir eftir að það vann Svía í keppni um sæti á ólympíuleikunum í Peking í sumar.
Skeytið er eftirfarandi:
„Við Dorrit óskum ykkur til hamingju með glæsilegan sigur í frábærum leik. Þjóðin fagnar öll og óskar ykkur heilla á komandi Ólympíuleikum.
Sigurkveðjur."