Ingimundur Ingimundarson, landsliðsmaður í handknattleik, fékk högg á höfuðið snemma í síðari hálfleik viðureignar Íslendinga og Belga í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í gærkvöld. Í framhaldinu fór hann af leikvelli og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Hann mun hafa jafnað sig og getur leikið með íslenska landsliðinu þegar það mætir Norðmönnum í næsta leik undankeppninnar sem fram fer í Laugardalshöll klukkan 16 á sunnudaginn.
Ingimundur rann í bleytu á leikvellinum þegar hann varðist sóknarmönnum Belga. Við það féll hann í gólfið og fékk högg á höfuðið.
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, sagði við Morgunblaðið í gær að hann ætti ekki von á öðru en Ingimundur verði eins og aðrir leikmenn íslenska landsliðsins klárir í slaginn þegar Norðmenn mæta í Laugardalshöll á sunnudaginn.