Róbert Evrópumeistari með Gummersbach

Róbert Gunnarsson varð Evrópumeistari í handknattleik annað árið í röð með Gummersbach í kvöld. stækka

Róbert Gunnarsson varð Evrópumeistari í handknattleik annað árið í röð með Gummersbach í kvöld. mbl.is/Kristinn

Róbert Gunnarsson og samherjar hans í þýska handknattleiksliðinu Vfl Gummersbach urðu í kvöld Evrópumeistarar bikarhafa í handknattleik þrátt fyrir fjögurra marka tap fyrir spænska liðinu Granollers, 37:33, í síðari leik liðanna sem fram fór á Spáni. Gummersbach vann fyrri leikinn á heimavelli sínum með níu marka mun, 34:25, og viðureignirnar tvær með samtals fimm mörkum, 67:62.

Þetta er annað árið í röð sem Róbert, sem er fyrirliði Gummersbach, verur Evrópumeistari í með félaginu. Gummersbach vann EHF-keppnina fyrir ári síðan.

Leikmenn Granollers náðu aldrei að ógna Gummersbach að ráði í síðari leiknum í kvöld. Fyrri hálfleikur var jafnt en Spánverjarnir voru með tveggja marka forskot í hálfleik, 18:16. Gummersbach komst yfir, 23:21, snemma í síðari hálfleik en eftir 45 mínútna leik var Granollers marki yfir, 25:24. Leikurinn var í járnum allt til loka og leikmenn Granollers skoruðu tvö síðustu mörk leikins á síðustu 20 sekúndunum en það dugði skammt.

Róbert lék allan leikinn í kvöld í sókn Gummersbach en tók minna þátt í varnarleiknum. Hann skoraði fjögur mörk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí


finnur.is