ÍBV tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarkeppninnar í handknattleik kvenna þegar liðið lagði Hauka, 36:29, í Vestmannaeyjum. ÍBV var níu mörkum yfir í hálfleik, 19:10.
ÍBV hefndi þar að einhverju leyti fyrir tap fyrir Haukum í N1-deildinni fyrir skömmu.
Mörk ÍBV; Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 10, Guðbjörg Guðmannsdóttir 8, Esther Óskarsdóttir 7, Renata Horvath 4, Hildur Dögg Jónsdóttir 4, Sigríður Lára Garðarsdóttir 1, Aníta Elíasdóttir 1, Sandra Gísladóttir 1.
Mörk Hauka: Hekla Hannesdóttir 8, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 6, Erla Eiríksdóttir 5, Þórunn Friðriksdóttir 3, Elsa Björk Árnadóttir 3, Karen Helga Sigurjónsdóttir 2, Katreina Baumruk 1, Sjöfn Ragnarsdóttir 1.