Atli Hilmarsson þjálfari Akureyringa sagði við mbl.is eftir leikinn gegn Haukum í kvöld að úrslitin hefðu verið sanngjörn en liðin skildu jöfn, 23:23, í miklum baráttuleik sem leikinn var á Ásvöllum. ,,Ég fer ánægður í jólafríið enda erum við á toppnum og þetta var gott stig á útivelli gegn meisturunum," sagði Atli.