Daníel fékk rautt spjald

Hafsteinn Ingibergsson dómari gefur hér Daníeli Andréssyni rauða spjaldið í …
Hafsteinn Ingibergsson dómari gefur hér Daníeli Andréssyni rauða spjaldið í Kaplakrika í gærkvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Daníel Andrésson, markvörður FH, fékk beint rautt spjald á 27. mínútu leiksins gegn Fram í N1-deildinni í handbolta í gærkvöld. Hann freistaðist til að ná boltanum af Frömurum sem voru að undirbúa hraðaupphlaup. Svo óhönduglega tókst Daníel til að hann hrasaði í veg fyrir Einar Rafn Eiðsson, leikmann Fram, sem féll við.

Þótt brot Daníels væri ekki alvarlegt og Einar Rafn meiddist ekki eru reglurnar um úthlaup markvarða skýrar og því varð Daníel að sætta sig við að fylgjast með því sem eftir var af leiknum frá áhorfendabekkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert