„Við erum að setja fullt af peningum í þetta“

mbl.is Júlíus G. Ingason, sport@mbl.is

Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV, sagði það hafa verið eitt af markmiðum vetrarins hjá ÍBV að standast bestu liðum landsins snúning í vetur. Svavari tókst í kvöld að koma ÍBV í bikarúrslitaleikinn í handknattleik kvenna í fyrsta skipti í sex ár með sigri á FH 24:13.

„Það er töluverður munur á liðunum. Við sjáum það bara á töflunni. Við erum með mikið betra, með fullri virðingu fyrir FH-liðinu. Við erum að setja fullt af peningum í þetta. Erum með fullt af útlendingum og atvinnumönnum í þessu. Við eigum að gera betur en þessi lið og kannski betur en flest önnur lið. Við erum að vinna í því og komin í bikarúrslit,“ sagði Svavar meðal annars í samtali við mbl.is í kvöld. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí


finnur.is